Aðdáendaklúbbur Völla Snæ

Wednesday, August 30, 2006

Leiðin að velgengni?

Já mörg ykkar eru eflaust að velta þessu fyrir sér akkúrat núna aðdáendur góðir. En örvæntið ekki. Torfi ákvað nefnilega á fallegum vordegi í maí síðastliðnum, að gefa upp þessa mjóu leið og Jóhann hinn eldri rót niður.

Lykillinn að velgengni er að forðast:
- lánavitleysu
- einkunnavitleysu
- mont

Höfundur: Torfi Steinn Stefánsson

Já flóknara er það ekki. Til allrar hamingju fann ég post-it miðann, sem þetta var ritað á, eftir ágætis sumarfrí og mun það skila sér í fyllingu tímans.

Ykkur aðdáendur góðir, þakka ég samfylgdina í gegnum lestur þessa pistils.
Veriði sæl.
Góða nótt.

Thursday, August 17, 2006

Doninn á leið í borgina




Þá fer að líða að því sem allir sunnlendingar hafa beðið spenntir eftir í allt sumar. Don Jói hefur ákveðið að heiðra höfuðborgina með komu sinni einhvern tíman í næstu viku. Nánari tímasetningu verður haldið leyndri af öryggisástæðum.

Helsta uppákoma helgarinnar verður þegar doninn auk annara meðlima Aðdáendaklúbbs Jóa Fel sem staddir verða á höfuðborgarsvæðinu flytja eigur hans út úr Félagsheimilinu. Væntanlega verður það á föstudaginn jafnvel eitthvað á laugardaginn, allt fer það eftir hversu menn verða virkir. Eins og allir vita þá er betra að eiga inni greiða hjá doninum en að skulda greiða því að búist er við að menn mæti og taki þátt í þessari uppákomu. Auk þess sem þetta verður væntanlega seinasta uppákoma Aðdáendaklúbbs Jóa Fel í nokkurn tíma alla vega miðað við það sem gjaldkerinn sagði hér fyrr í sumar, að hann ásamt öðrum meðlimum væru allt að því óhæfir í að halda samkomur án þáttöku donsins.

Vel gæti hugsast að einn og einn bjór verði með í för en af seinustu samræðum donsins við formanninn má hann víst ekki fá sér bjór vegna anna við knattspyrnuiðkun. Einnig er aldrei að vita með aðra meðlimi miðað við þær fréttir sem doninn er búinn að fá frá höfuðborginni í sumar að menn hafa ekki verið að standa sig nógu vel.

don Jói a.k.a. Jói Kóngur eins og tvær háttvirtar dömur ákváðu að nefna mig um seinustu helgi.

Tuesday, July 04, 2006

Kei

Kei, keeeei. gera? kei, Joi Fel gera? kei, elda gera, kei

Tuesday, June 20, 2006

Lítið að gerast

Vill byrja á því að óska Varaformanninum og gjaldkeranum til hamingju með afmælin sem þeir áttu nú á dögunum.

Annars er það frekar lélegt hvað það er lítið að gerast hérna þessa dagana. Einungis eru það ég og gjaldkerinn sem hafa haft okkur eitthvað frammi. Lýsi ég hér með restina vera aumingja.

Annars kom upp hugmynd um útileigu, hvernig væri það. Leigja sumarbústað og fá sér 1-2 bjóra og skemmta sér. Hugmyndin var um 1 helgina í Júlí hvað segja menn um það. Væri fínt að fara að fá smá líf í klúbbinn svona einu sinni áður en allt fer til fjandans (þ.e. ég fer út og klúbburinn lognast af tímabundið) alla miðað við þær lýsingar sem gjaldkerinn var með í kommentum hér að undan.

Annars góð helgi nýbúin, ennþá þunnur á þriðjudegi auk þess sem það sést á manni eftir árás 2 olíhausa á sunnudagsmorgunin. Flottir gaurar þar!

don Joe

Saturday, May 27, 2006

Sohh

Jæja, ekki hægt að hafa þessa færslu hér efst mikið lengur. Tel þær þó lýsa joe nokkuð vel. Sjáum hvernig mál verða með hann í ellinni. Ekki fagurt það, enda sérstakur maður þar á ferð, sbr. linkana frá honum hér að neðan.

Ég legg til að menn fari að virkja sig og við skipuleggjum einhvert húllumhæ gathering og einsog vill verða þegar við hittumst yfir bjór. Sjaldan deifð yfir því, þó síðan okkar sé dauf. Vægt til orða tekið.

Sjandrés er fluttur inn í nýja palasið ásamt sinni ektakvinnu og legg ég til að hann bjóði í grill. Félagsheimilið er komið í hendur kvenmanns svo ekki verða hittingarnir fleiri þar í bili, og sennilega aldrei framar þar sem joe hyggur á landflutninga. Hann er þó ekki á heimleið til Tyrklands, einsog ég hefði búist við eða Ítalíu til mafíustarfa, heldur Spánar af öllum löndum. Joe ætti þó að sóma sér vel þar með öðrum álíka Fabíóum, enda mesti Fabíó sjálfur.

Ég vil að menn fari að drulla sér til að kommenta. Þetta er ekki hægt. Einnig er nauðsynlegt að klúbburinn fari að taka til starfa, koma þarf á nefnd sem getur farið með þau störf sem ég fór með, meðan ég gat enn titlað sjálfan mig Reglu-oglagabálk. Vona að menn sjái hvaða afleiðingar það hefur haft, að ég hafi tekið niður þá nafnbót. Klúbburinn hefur farið norður og niður síðan.

Bið að heilsa drulludelum norður í skít og snjó, og ennþá betur þeim góðum mönnum sem ákvaðu að halda sig á suðrænni miðum, lausum við snjó og skít.

Sjaldsjer.

Sunday, May 14, 2006

Skemmtun

Nú þar sem próftíð er á enda langar mig til þess að deila með þeim síðum sem ég hef haft hvað mest gaman af seinsustu daga.

http://www.hai2u.com/
http://www.porkhole.net
http://www.smegma.ca

Allt saman stórskemmtilegt efni sem svíkur engan.

don Joe

Thursday, May 11, 2006

Fróðleikur

Ég held að það skipti miklu máli fyrir evrópskt nútímafólk að hugsa út í að forfeður þeirra og formæður, fólk með nákvæmlega okkar erfðavísa, hélt þræla og fannst það sjálfsagt - eða var kannski þrælar sjálft. Það bar út börn og leit á það sem dáð að drepa fólk án dóms og laga. Það brenndi fólk á báli, þvoði upp úr hlandi, taldi það feigðarmerki að vera ólúsugt.

Dýrðartímar Íslendinga fyrr á öldum!

kv. don Joe